Hvernig virkar Spjallbox?
Frá fyrirspurn að yfirförnu svari.
Þú getur sett Spjallbox upp eða fengið okkur til að setja það á vefinn þinn frítt með áskrift. Eftir það safnar kerfið erindum og undirbýr svörin — þú lest yfir og sendir.
- 14 daga prufa
- Ekkert greiðslukort
- Frí uppsetning með áskrift
1Erindið kemur inn
Anna Kristín
Hæ, hvenær opnið þið á laugardaginn?
2Svardrögin bíða
Svardrög
Hæ! Við opnum kl. 11 á laugardögum og erum með opið til 16.
3Þú samþykkir og sendir
Hæ! Við opnum kl. 11 á laugardögum og erum með opið til 16.
Svar sent · 38 sek.
Sýnidæmi með prófgögnum
Hluti 1 · Uppsetning
Fjögur skref. Eitt skref í einu.
Byrjaðu á netspjallinu einu og sér eða tengdu tölvupóstinn strax. Þú bætir öðrum rásum við þegar þér hentar.
Tíminn fer eftir vefnum og tengingunum ykkar
- 01Aðgangur
Stofnaðu aðgang
Nafn, netfang og lykilorð. Staðfestu netfangið og stofnaðu vinnusvæði til að byrja 14 daga Teymi-prufu.
- 02Tenging
Settu spjallið á vefinn
Límdu eina línu af kóða á vefinn. Einnig er hægt að nota WordPress, Shopify, Wix eða Google Tag Manager.
Sjá uppsetningarleiðir - 03Þekking
Kenndu Spjallbox
Sláðu inn vefslóðina þína eða bættu við algengum spurningum. Þá verða svardrögin byggð á upplýsingum frá fyrirtækinu.
- 04Valfrjálst
Sæktu appið
Fáðu tilkynningar og svaraðu úr símanum eða tölvunni. Allt er samstillt við vefinn í rauntíma.
Sækja appið
Svona lítur kóðabúturinn út. Rétti veflykillinn birtist í þínum aðgangi.
<script
src="https://www.spjallbox.is/embed.js"
data-public-key="pk_••••••••"
async
></script>Hluti 2 · Dagleg vinna
Erindi inn. Svar út.
Sama ferli gildir fyrir allar rásir. Spjallbox safnar saman samhenginu, gervigreindin undirbýr svarið og þú hefur lokaorðið.
Erindið kemur inn
Netspjall, tölvupóstur og samfélagsmiðlar lenda í sama innhólfinu — með allri samskiptasögunni.
Svardrögin bíða
Gervigreindin finnur viðeigandi upplýsingar og semur drög á íslensku um leið og erindið berst.
Þú lest yfir og sendir
Lagaðu orðalagið ef þarf og sendu með einum smelli. Ekkert fer út án samþykkis nema þú veljir það sérstaklega.
Þú stjórnar alltaf því sem fer út.
Gervigreindin semur drög en sendir ekki fyrir þína hönd. Þú getur valið að kveikja á sjálfvirkum svörum síðar.
Sama innhólf, alls staðar
iOS, Android, macOS og Windows — með tilkynningum og samstillingu í rauntíma.
Sækja appiðÁður en þú byrjar
Einföld svör. Engin flækja.
Finnurðu ekki svarið? Við svörum fljótt.